Hrossaræktin okkar er frekar ung og enn sem komið er fremur smá í sniðum, en við erum að fá um 2-3 folöld á ári. Við höldum einungis hryssum sem bera kosti sem við viljum sjá áfram og okkur finnst verðugar í ræktun. Við veljum stóðhesta fyrir hverja og eina hryssu fyrir sig með kosti og galla hennar og hestsins í huga. Okkar markmið er að rækta viljug, fasmikil hross með góð gangskil, mikinn fótaburð og gott geðslag